Ekki ærumeiðingar - aðeins misskilningur á viðtengingarhætti 4. febrúar 2010 10:00 Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Umhverfisráðuneytið hefur sent frá sér áréttingu vegna frétta af bókun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps, þar sem meintum ærumeiðingum umhverfisráðherra í ákvörðun um breytingu á aðalskipulagi hreppsins er mótmælt. Umhverfisráðuneytið segir bókun sveitarstjórnarinnar byggða á misskilningi á einni efnisgrein í bréfi umhverfisráðherra. Þá segir að ef til vill megi rekja misskilninginn til þess að sveitarstjórnarmönnum hafi yfirsést að síðasta sögn efnisgreinarinnar er í viðtengingarhætti. Sú efnisgrein í bréfi ráðherra sem sveitarstjórnin vísar til er svohljóðandi: „Í framkomnum gögnum hafa komið fram upplýsingar um að sveitarstjórnarmenn hafi persónulega þegið aukagreiðslur frá Landsvirkjun vegna funda í sambandi við skipulagsgerðina sem ekki hafi verið færðar til bókar og að þær greiðslur hafi verið inntar af hendi í lok árs 2009. Að mati ráðuneytisins verður að telja slíka tilhögun ólögmæta við skipulagsgerð sveitarstjórnar eigi hún sér stað." Þarna vísar ráðuneytið til þess að í gögnum hafi komið fram það sama og var áberandi í umræðu um málið á sínum tíma - að einstaklingar hafi þegið greiðslur frá framkvæmdaraðila. Ráðuneytið leggur ekki mat á þær upplýsingar, enda eru þær ekki lagðar til grundvallar ákvörðun ráðuneytisins í málinu. Hins vegar er talin ástæða til að nefna þetta og undirstrika þann lagaskilning að slíkar greiðslur stangist á við lög ef þær eiga sér stað. Ekki er kveðið upp úr með að þær hafi átt sér stað í þessu tilviki - þótt sveitarstjórnin hafi túlkað texta ráðuneytisins svo.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira