Jóhanna ræðir við erlenda fréttamenn 4. febrúar 2010 17:27 Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir enga leynd hafa hvílt yfir fundi hennar með José Manuel Barroso forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel í morgun. Til hafi staðið að hún fundaði með honum á loftlagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í desember en af því hafi ekki getað orðið. Þá hafi verið ákveðið að fundurinn yrði í febrúar og frá því greint á sínum tíma. Það hafi einnig komið fram í fjölmiðlum á Íslandi á þriðjudag að hún væri að fara til þessa fundar. „Ég var rétt í þessu að ræða við erlendan fjölmiðil," sagði Jóhanna í samtali við fréttastofu rétt eftir fundinn með Barroso. Það væri því rangt að hún ætlaði ekki að ræða við erlenda fjölmiðla í Brussel. Á Alþingi í morgun sagði Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins að forsætisráðherra hefði smánað þjóð sína með leynd yfir fundi hennar í Brussel. Það væru bara einræðisherrar í Asíu sem forðust fjölmiðla eins og forsætisráðherra Íslands ætlaði að gera. Undir þetta tók Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en hann vísaði í viðtal við erlendan blaðamann sem héldi þessu fram. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákveður hinn 24. febrúar næst komandi hvort Ísland er fullgilt umsóknarríki. Jóhanna segist bjartsýn eftir fundinn í morgunn með Barroso og Olle Rhen stækkunarstjóra sambandsins um að umsókn Íslands verði samþykkt. Fari svo verður hún endanlega tekinn fyrir á fundi framkvæmdastjórnarinnar í mars.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Sjá meira