Fækkun sparar 360 milljónir 12. júní 2010 06:00 Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Mynd/Anton
Stjórnarfrumvarp sem lagt hefur verið fram á Alþingi gerir ráð fyrir að ráðuneytum verði fækkað um þrjú með sameiningu ráðuneyta. Frumvarpið er lagt fram í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Í því er lagt til að dómsmála- og mannréttindaráðuneyti verði sameinað samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu í nýju innanríkisráðuneyti. Lagt er til að félags- og tryggingamálaráðuneytið sameinist heilbrigðisráðuneytinu í svonefndu velferðarráðuneyti. Þá felur frumvarpið í sér að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og iðnaðarráðuneytið sameinist í einu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Í umsögn fjármálaráðuneytisins með frumvarpinu segir að samþykkt þess geti leitt til um 360 milljóna króna sparnaðar á ári auk lækkunar á húsnæðiskostnaði og öðrum kostnaði vegna samlegðaráhrifa. „Vegna biðlauna og tímabundins kostnaðar við breytingar á húsnæði og flutning má þó allt eins gera ráð fyrir að ekki muni takast að ná fram nema hluta þeirrar kostnaðarlækkunar á fyrstu 12 mánuðum eftir gildistöku," tekur ráðuneytið þó fram. Enn fremur er ætlunin að þeir þættir sem tilheyrt hafa auðlindamálum í iðnaðarráðuneytinu og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu færist til umhverfisráðuneytisins sem eftirleiðis verði nefnt umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Útfærslu á þessu er ekki að finna í frumvarpinu enda mun hún ekki vera tilbúin. Í athugasemdum með frumvarpinu segir að velferðarráðuneyti muni hafa betri yfirsýn yfir velferðarúrræði, „allt frá forvörnum og félagslegum úrræðum til heilbrigðisþjónustu, og tryggja betri yfirsýn og nýtingu fjármuna og um leið sveigjanlegri velferðarþjónustu". Þá segir að að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið muni „styrkja stjórnsýslu og stuðning stjórnvalda við helstu atvinnuvegi landsmanna og nýsköpun og sameina þjónustu og umgjörð fyrir allar atvinnugreinar á einum stað." Umhverfis- og auðlindaráðuneytið er sagt munu fá aukið hlutverk varðandi rannsóknir, nýtingarstefnu, ráðgjöf og verndun á sviði auðlindamála. „Loks mun nýtt innanríkisráðuneyti skapa ramma um innanríkismál og innviði samfélagsins, öryggis- og varnarmál á lofti, sjó og landi og þar með allar stofnanir sem sinna þjónustu á þessum sviðum," segir í athugasemdunum.Kristján L. MöllerÁrni Páll ÁrnasonÁlfheiður IngadóttirJón BjarnasonKatrín JúlíusdóttirSvandís Svavarsdóttir
Mest lesið Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Fannst látinn í tjaldi Innlent Fleiri fréttir Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent