Innlent

Lést vegna ofneyslu og höfuðhöggs

Ástæður andláts karlmanns sem fannst látinn á göngustíg í Grafarholtinu á fimmtudagsmorgun eru taldar vera ofneysla lyfja og jafnvel högg sem hann hlaut þegar hann féll í götuna. Hann féll fram fyrir sig og hlaut höfuðhögg.

Maðurinn var á milli þrítugs og fertugs. Hann var krufinn í gærmorgun. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum er talið líklegt að hann hafi látist af þessum tveimur samverkandi þáttum. Málið er hins vegar enn í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×