Niðurskurði á Austurlandi harðlega mótmælt 5. október 2010 16:53 Heilbrigðisstofnun Austurlands.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega niðurskurðaráformum stjórnvalda, er varða Heilbrigðisstofnun Austurlands eins og þau koma fram í framlögðu frumvarpi til fjárlaga 2011. Í tilkynningu frá stjórninni segir að í kjölfar mikilla sparnaðaraðgerða undarin tvö ár sé nú boðaður 22,1 prósenta niðurskurður á heildarframlögum til stofnunarinnar, sem rekur starfsstöðvar í 11 byggðarlögum, og 52 prósenta niðurskurður á sjúkrasviði stofnunarinnar. Stjórnin segir þessi áform ekkert annað en aðför að heilbrigðisþjónustunni á starfssvæði HSA sem afhjúpi virðingarleysi heilbrigðisyfirvalda til íbúa í fjórðungnum og skerðir velferðarþjónustu á svæðinu. „Ekki liggur fyrir mat á samfélagslegum áhrifum, sem boðaður niðurskurður mun hafa í för með sér á Austurlandi. Vafalaust munu áformin leiða til aukins atvinnuleysis með tilheyrandi kostnaði fyrir ríkissjóð, (og) íbúafækkunar með tilheyrandi tekjutapi fyrir sveitarsjóði og fýsileiki svæðisins til búsetu og atvinnurekstrar minnkar til muna. Þá er ótalinn sá öryggisþáttur sem skert aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimabyggð er, að ógleymdum auknum kostnaði íbúanna við að sækja þjónustu um lengri veg," segir ennfremur. „Stjórn SSA átelur heilbrigðisráðuneytið fyrir samráðsleysi við ákvörðun um áformaða grundvallarbreytingu á heilbrigðisþjónustu í landshlutanum og skorar á heilbrigðisráðherra að endurskoða boðuð niðurskurðaráform. Jafnframt er heitið á alþingismenn NA - kjördæmis að beita sér fyrir að endurskoðun á fjárheimildum til HSA, eins og þau liggja nú fyrir."
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Sjá meira