Innlent

Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi fyrr í vikunni. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 250 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar.

Í tilkynningu segir að á sama stað var einnig lagt hald á 2,5 kg af marijúana sem var þarna í þurrkun.

Tveir karlar og eina kona, öll um þrítugt, voru yfirheyrð í tengslum við rannsókn málsins en annar mannanna játaði aðild sína að málinu sem telst upplýst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×