Innlent

Herjólfi seinkar vegna veðurs

Seinkun hefur orðið á ferðum Herjólfs frá Vestmannaeyjum í dag en ferð sem fara átti klukkan 10:30 var frestað til klukkan 13:00 og aftur til klukkan 14:00.

Talsverður vindur er í Eyjum þessa stundina og eru aðstæður þannig að ekki þykir ráðlagt að sigla strax inn í hina nýju höfn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×