Svandís áfrýjar dómi vegna óskýrra laga 8. október 2010 04:15 Frá Urriðafossi. Virkjunaráætlanir Landsvirkjunar eru í biðstöðu á meðan Flóahreppur og umhverfisráðuneytið eigast við fyrir dómstólum. Fréttablaðið/Anton
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem synjun hennar á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun var ógilt. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vilji skýrari leiðsögn um það hver megi koma að kostnaði við skipulagsgerð. Forsaga málsins er sú að Flóahreppur og Landsvirkjun gerðu árið 2007 með sér samkomulag sem fól meðal annars í sér að Landsvirkjun skyldi kosta skipulagsgerð vegna fyrirhugaðrar virkjunar við Urriðafoss. Eftir nokkurt þóf, þar sem samningnum var meðal annars breytt eftir kærumál, barst skipulagstillagan umhverfisráðuneytinu í mars 2009, en í janúar síðastliðnum neitaði ráðherra að staðfesta skipulagið því hún efaðist um lögmæti aðkomu Landsvirkjunar. Flóahreppur kærði synjunina og héraðsdómur ógilti hana á þeim grundvelli að lög bönnuðu ekki að framkvæmdaraðili greiddi fyrir kostnað vegna skipulagsvinnu. Svandís segir í samtali við Fréttablaðið að dómurinn hafi hins vegar ekki verið nógu skýr og því hafi hún áfrýjað. „Þetta er skilið eftir opið, en ekki bara hvað varðar þessa löggjöf.“ Tryggja þurfi að rekstrargrunnur sveitarfélaga komi úr almennum sjóðum svo almannahagsmunum sé ekki ógnað með þrýstingi frá kostendum. Athygli vekur að í nýjum skipulagslögum, sem samþykkt voru í síðasta mánuði og taka gildi í upphafi næsta árs, segir að ef þörf sé á sveitarstjórn megi innheimta gjald fyrir skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna framkvæmda. Svandís segir að þó að ný lög séu skýrari tiltaki þau ekki frekar en héraðsdómur með tæmandi hætti hverjir megi koma að málum. „Það er grein í nýju lögunum þar sem gert er ráð fyrir að gera megi samning við þriðja aðila um aðkomu að kostnaði. En með hvaða hætti það er gert og hvernig það er útfært er ekki skýrt.“ Á meðan eru skipulagsmál Flóahrepps í biðstöðu. Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri segir í samtali við Fréttablaðið að nóg sé komið. „Við erum búin að bíða allt of lengi og bíðum enn og í mínum huga er þetta sóun á tíma og peningum.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira