Innlent

Lægstu laun duga ekki fyrir framfærslu

Lægstu laun kauptaxta eru svo lág að þau duga ekki fyrir framfærslu. Þetta kemur fram í ályktun frá Afli starfsgreinafélagi.

Þar segir einnig að í komandi samningum verði að tryggja kaupmátt launa út samningstímabilið og að laun verði hækkuð; áherslu þurfi að leggja á lægstu laun umfram önnur.

Þá telur Afl að stefna verði að því markmiði að færa lífskjör launafólks hér nær því sem þekkist í nágrannalöndunum; fólk geti lifað af dagvinnu og því þurfi að hækka dagvinnulaun verulega. Þá skuli stefnt að því að stytta vinnuvikuna niður í þrjátíu og átta stundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×