Innlent

Einelti í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja linni

Mynd/Pjetur
Rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er ríkisvaldinu gjörsamlega ofviða og hringlandaháttur stjórnvalda dregur máttinn úr starfsfólki stofnunarinnar, að mati stjórnar Starfsmannafélags Suðurnesja. Stjórnin telur að tími sé kominn til að eineldi stjórnvalda í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja linni. Hátt í 50 félagsmenn félagsins starfa á heilbrigðisstofnunni.

Skorið verður niður í rekstri stofnunarinnar, starfsfólki fækkað og skurðstofum lokað frá 1. maí næstkomandi. Stjórn Starfsmannafélagsins telur að með þessu skerðist þjónusta verulega.

„Þá hefur einnig heyrst að ráðuneytið hyggist afla sér fjár með því að selja hluta af tækjum stofnunarinnar, þeirra á meðal tæki sem fyrirtæki og félagasamtök hafa gefið HSS með góðum hug. Þetta sýnir að rekstur HSS og jafnvel fleiri heilbrigðisstofnanna er ríkisvaldinu gjörsamlega ofviða. Á síðustu sex árum hafa ákvarðanir heilbrigðisráðherra varðandi skurðstofuþjónustu á HSS breyst fimm sinnum," segir í ályktun stjórnar Starfsmannafélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×