Innlent

Geta sótt um frystingu hjá LÍN

Þeir sem eiga í verulegum fjárhagsörðugleikum geta nú sótt um þriggja ára frystingu á greiðslu afborgana námslána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Til að fá frystinguna þarf viðkomandi að vera með öll sín bankalán í frystingu, vera í skuldaaðlögun eða með mat frá Ráðgjafastofu heimilanna um að greiðslugeta viðkomandi sé mjög slæm.

Hægt er að sækja um frystingu námslána á heimasíðu Lánasjóðsins eða á sérstöku eyðublaði. Skilyrði fyrir frystingu er yfirlýsing frá viðskiptabanka eða Ráðgjafastofunni um fjárhagserfiðleika viðkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×