Innlent

Íslendingur í Madrid: Það eru allir á bleiku skýi

Boði Logason skrifar
Gríðarleg fagnaðarlæti voru í Madridar-borg í nótt. Fagnaðarlætin munu svo halda áfram í kvöld þegar að hetjurnar munu keyra um borgina í rútu.
Gríðarleg fagnaðarlæti voru í Madridar-borg í nótt. Fagnaðarlætin munu svo halda áfram í kvöld þegar að hetjurnar munu keyra um borgina í rútu. Mynd/AFP
„Þetta var algjör geðveiki, það var þvílíkt partý í gangi alla nóttina," segir Bryndís Harðardóttir, sem býr í höfuðborg Spánar, Madrid. Spánverjar unnu Hollendinga í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í gær. Þetta er í fyrsta skiptið sem Spánverjar verða heimsmeistarar í knattspyrnu og fögnuðu heimamenn ákaft eftir að Andrés Iniesta skoraði eina mark leiksins í framlengingu.

Fagnaðarlætin stóðu langt fram eftir nóttu. „Þegar leikurinn var í gangi þá var bara enginn út á götu, það voru bara allir að horfa á hann. Þegar að leikurinn var búinn var fólk að príla upp á götuljósum, dansa í gosbrunnum og keyra um á bílum flautandi með hausinn út um gluggann. Ég sá svo tvo gaura færa leigubíl með leigubílstjórann inn í honum. Fólk var að missa sig," segir Bryndís.

Í dag eru Spánverjar í góðu skapi segir hún og boðið sé upp á öl hvert sem farið er. „Það eru allir klæddir rauðu í dag og allir með spænska fánann út á svölum hjá sér, það er mjög vinalegt. Það eru allir á bleiku skýi," segir Bryndís.

Hetjurnar munu svo keyra um götur Madridar í rútu klukkan sjö í kvöld að staðartíma. „Nú er fólk bara að bíða eftir því að þeir komi til landsins til að hylla þá. Þessir menn eru bara goð í dag, það vilja allir berja þá augum. Það verður áfram brjálað partý í kvöld," segir Bryndís sem er búsett í miðborg Madridar. „Ætli maður fari ekki út á stétt og gefi þeim "high-five", þetta verður ótrúlega skemmtilegt held ég."

Fátt annað hefur komist að í fjölmiðlum landsins í dag en sigurinn á Hollendingum segir Bryndís. „Það eru allir komnir með nóg af þessu krepputali, einhverjir hafa talað um að Spánverjar séu að fara sömu leið og Grikkir, núna er það bara hætt. Ég hugsa að þetta eigi bara eftir að hjálpa hagkerfinu ótrúlega mikið, það eru allir svo glaðir og eyða peningum," segir Bryndís að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×