Innlent

Vissara að slökkva á viðkvæmum tækjum

Framleiðendur raftækja gera alla jafna ráð fyrir því að þau þurfi að þola einhverjar spennusveiflur. Þau eru þó misviðkvæm. Eitthvað hefur verið um að ísskápar og tölvur hafi bilað eftir truflun sem varð í síðustu viku. Fréttablaðið/Pjetur
Framleiðendur raftækja gera alla jafna ráð fyrir því að þau þurfi að þola einhverjar spennusveiflur. Þau eru þó misviðkvæm. Eitthvað hefur verið um að ísskápar og tölvur hafi bilað eftir truflun sem varð í síðustu viku. Fréttablaðið/Pjetur
Alla jafna er orðið of seint að bregðast við þegar almennir notendur verða varir við rafmagnstruflanir, að sögn Sigurðar Geirssonar, skólastjóra Rafiðnaðarskólans. Flökt á ljósum getur til að mynda verið merki um truflun í rafkerfinu. Í síðustu viku olli truflun hjá Norðuráli á Grundartanga keðjuverkandi áhrifum sem komu fram sem flökt í spennu um land allt og rafmagnsleysi á nokkrum stöðum.

Fari rafmagn alveg af segir Sigurður að ráðlegt kunni hins vegar að vera að slökkva alveg á viðkvæmum tækjum, svo sem tölvum, ísskápum og sjónvarpstækjum. „Þegar svona bilanir verða gerist það stundum þegar rafmagn er sett inn aftur að það dettur kannski út tvisvar til þrisvar sinnum áður en það kemur inn.“ Þetta segir hann að gerist vegna þess álags sem verður á kerfinu þegar koma þarf aftur straumi á stór svæði.

Þá segir Sigurður rétt að hafa vara á í þrumu- og eldingaveðrum og slökkva á raftækjum sem viðvæm eru fyrir spennusveiflum. Annars segir Sigurður að framleiðendur raftækja geri almennt ráð fyrir því að þau þurfi að þola einhverjar sveiflur og því í raun ekki svo algengt að þau bili þótt smáflökt verði á rafmagninu. Hins vegar kunni slíkt flökt að verða til þess að notendur fari að huga að tækjum sínum og veiti þá jafnvel athygli bilunum sem þegar hafi verið til staðar, en tengi þær ranglega rafmagnsbiluninni.

Frá því var greint í Fréttablaðinu í gær að á milli 30 og 40 tilkynningar um bilanir í raftækjum sem raktar hafi verið til straumflöktsins í síðustu viku hafi skilað sér til tryggingafélagsins VÍS. Tjón hafi orðið á tölvum og fleiri raftækjum.

Ólafur Haukur Ólafsson, deildar­stjóri í tjónaþjónustu Tryggingamiðstöðvarinnar, segir að þar hafi til þessa komið tíu tilkyningar, allt vegna ísskápa sem hafi bilað. „Þetta er því ekki í stórum stíl,“ segir hann. Áður hafi viðkvæmustu tækin í slíkum aðstæðum oft reynst vera ljósritunarvélar, faxtæki og símstöðvar fyrir þráðlausa síma. Hjá Sjóvá lágu ekki fyrir upplýsingar um fjölda tilkynninga um tjón vegna straumrofsins fyrir helgi.

Í verslunum sem selja tölvur og jaðartæki er hægt að kaupa varaaflgjafa sem jafna straum til tölva og veita ráðrúm til að slökkva á þeim fari rafmagn. Þá er líka sums staðar að fá fjöltengi sem eru með innbyggðri straumjöfnun.

olikr@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×