Vissara að slökkva á viðkvæmum tækjum 7. september 2010 06:00 Framleiðendur raftækja gera alla jafna ráð fyrir því að þau þurfi að þola einhverjar spennusveiflur. Þau eru þó misviðkvæm. Eitthvað hefur verið um að ísskápar og tölvur hafi bilað eftir truflun sem varð í síðustu viku. Fréttablaðið/Pjetur
Alla jafna er orðið of seint að bregðast við þegar almennir notendur verða varir við rafmagnstruflanir, að sögn Sigurðar Geirssonar, skólastjóra Rafiðnaðarskólans. Flökt á ljósum getur til að mynda verið merki um truflun í rafkerfinu. Í síðustu viku olli truflun hjá Norðuráli á Grundartanga keðjuverkandi áhrifum sem komu fram sem flökt í spennu um land allt og rafmagnsleysi á nokkrum stöðum. Fari rafmagn alveg af segir Sigurður að ráðlegt kunni hins vegar að vera að slökkva alveg á viðkvæmum tækjum, svo sem tölvum, ísskápum og sjónvarpstækjum. „Þegar svona bilanir verða gerist það stundum þegar rafmagn er sett inn aftur að það dettur kannski út tvisvar til þrisvar sinnum áður en það kemur inn.“ Þetta segir hann að gerist vegna þess álags sem verður á kerfinu þegar koma þarf aftur straumi á stór svæði. Þá segir Sigurður rétt að hafa vara á í þrumu- og eldingaveðrum og slökkva á raftækjum sem viðvæm eru fyrir spennusveiflum. Annars segir Sigurður að framleiðendur raftækja geri almennt ráð fyrir því að þau þurfi að þola einhverjar sveiflur og því í raun ekki svo algengt að þau bili þótt smáflökt verði á rafmagninu. Hins vegar kunni slíkt flökt að verða til þess að notendur fari að huga að tækjum sínum og veiti þá jafnvel athygli bilunum sem þegar hafi verið til staðar, en tengi þær ranglega rafmagnsbiluninni. Frá því var greint í Fréttablaðinu í gær að á milli 30 og 40 tilkynningar um bilanir í raftækjum sem raktar hafi verið til straumflöktsins í síðustu viku hafi skilað sér til tryggingafélagsins VÍS. Tjón hafi orðið á tölvum og fleiri raftækjum. Ólafur Haukur Ólafsson, deildarstjóri í tjónaþjónustu Tryggingamiðstöðvarinnar, segir að þar hafi til þessa komið tíu tilkyningar, allt vegna ísskápa sem hafi bilað. „Þetta er því ekki í stórum stíl,“ segir hann. Áður hafi viðkvæmustu tækin í slíkum aðstæðum oft reynst vera ljósritunarvélar, faxtæki og símstöðvar fyrir þráðlausa síma. Hjá Sjóvá lágu ekki fyrir upplýsingar um fjölda tilkynninga um tjón vegna straumrofsins fyrir helgi. Í verslunum sem selja tölvur og jaðartæki er hægt að kaupa varaaflgjafa sem jafna straum til tölva og veita ráðrúm til að slökkva á þeim fari rafmagn. Þá er líka sums staðar að fá fjöltengi sem eru með innbyggðri straumjöfnun. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Ekkert bóli á sleggjunni að ári liðnu Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Sjá meira