Bið eftir hjartaaðgerð ekki verið styttri í fimm ár 18. júní 2010 15:18
Meðalbiðtími eftir hjartaaðgerðum hefur ekki verið styttri í fimm ár að því er fram kemur á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins. Í greinargerð Landspítala vegna hjartaaðgerða kemur fram að biðtími eftir aðgerðum í ár sé 1-2 mánuðir, óháð aðgerð. „Meðalbiðtími eftir hjartaaðgerðum á árunum 2005-2007 var 3-4 mánuðir að vetri en 4-5 mánuðir að sumri. Árið 2008 var meðalbiðtími 5-6 mánuðir eftir hjartalokuaðgerð, en 3-4 mánuðir eftir kransæðaaðgerð. Í fyrra var meðalbiðtíminn 4-5 mánuðir vegna hjartalokuaðgerða og 2-3 mánuðir vegna kransæðaaðgerða. Öll árin hefur áætlaður biðtími heldur lengst yfir sumarmánuðina, en í gegnum tíðina hefur biðtími verið lengstur eftir hjartalokuaðgerð sem ekki er flokkuð í forgangi," segir í frétt á vef ráðuneytisins. Þá segir að í byrjun september 2008 hafi alls 64 einstaklingar verið á biðlista eftir hjartaaðgerð. Á haustmánuðum ársins 2008 var gert átak og hjartaaðgerðum fjölgað upp í allt að átta aðgerðir á viku. og þann 1. desember það ár hafði fækkað um næstum helming á biðlistanum. Í greinargerð Landspítala segir að markmiðið sé að biðtími eftir hjartaskurðaðgerðum sé sem stystur. Að öðru leyti sé raðað í aðgerðir með þeim hætti að sjúklingar sem ekki þurfi forgang bíði aldrei lengur en 3 mánuði. „Sjúklingar sem þurfi forgang en séu ekki inniliggjandi bíði mest í 4 vikur og inniliggjandi sjúklingar, sem þurfi forgang, bíði ekki lengur en 1-2 vikur eftir aðgerð," segir að lokum.
Mest lesið Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Erlent Fleiri fréttir Sérsveit tók þátt í aðgerð lögreglu á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Sjá meira