Séra Sigurður vígslubiskup látinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. nóvember 2010 11:58 Séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup.
Séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, andaðist á Landspítalanum í Reykjavík í morgun. Hann var 66 ára að aldri. Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Arndís Jónsdóttir, skólastjóri. Þau eignuðust tvö börn, Stefaníu og Jón Magnús. Fóstursonur þeirra, Rúnar Kristjánsson, lést árið 2000. Í tilkynningu frá Biskupsstofu vegna andláts Sigurðar kemur fram að hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1965 og lauk kandídatsprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1971. Hann nam einnig fiðluleik og kenndi um tíma á fiðlu. Sigurður lauk meistaraprófi í guðfræði frá Princeton Theological Seminary 1981. Séra Sigurður var sóknarprestur á Selfossi 1971-1994 er hann tók við embætti vígslubiskups í Skálholtsstifti og gegndi því embætti þar til hann lést. Hann sinnti kennslustörfum um árabil og var stundakennari í kennimannlegri guðfræði við Guðfræðideild Háskóla Íslands 1983-84 og 1989. Hann sat í stjórn Prestafélags Íslands og var formaður þess um tíma. Séra Sigurður sat í fjölmörgum nefndum og ráðum á vegum þjóðkirkjunnar, í helgisiðanefnd þjóðkirkjunnar um árabil og í kenningarnefnd frá árinu 1998. Hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var staðgengill biskups Íslands frá árinu 2003. Séra Sigurður ritaði bókina Þorlákur helgi og samtíð hans sem kom út árið 1993. Hann ritaði og fjölda greina í Kirkjuritið, Morgunblaðið og héraðsblöð Sunnlendinga. Séra Sigurður Sigurðarson var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1994 og stórriddarakrossi á kristnihátíðarárinu 2000.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira