Innlent

Hreyfingin: Alþingi hunsar eftirlitshlutverk sitt

Þingmenn Hreyfingarinnar. Birgitta Jónsdótitr, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari.
Þingmenn Hreyfingarinnar. Birgitta Jónsdótitr, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari.

Þingflokkur Hreyfingarinnar segir Alþingi hunsa eftirlitshlutverk sitt með því að samþykka lokafjárlög fyrir árið 2008 þegar bankakerfið hrundi. Þingmenn Hreyfingarinnar lögðu til að frumvarpinu yrði hafnað þar til fullnægjandi skýringar á falli Seðlabanka Íslands væru gefnar og fyrir lægi greinargerð um hvað unnt sé að læra af þeirri sóun á opinberum fjármunum sem þar átti sér stað, líkt og það er orðað í yfirlýsingu þingflokksins.

Lokafjárlög 2008 voru samþykkt með 39 atkvæðum í dag. Þingmenn Hreyfingarinnar greiddu atkvæði gegn lögunum en fjórir þingmenn Framsóknarflokksins auk Þráins Bertelssonar, sem er utan flokka, sátu hjá.

Í yfirlýsingu þingmanna Hreyfingarinnar ssegir ennfremur að enginn hafi enn kannað hvað sé að hjá bankanum og það hafi ekki enn verið útskýrt fyrir almenningi með fullnægjandi hætti hvað gerðist þegar bankakerfið hrundið.

„Jafnframt þurfa að liggja fyrir nýir verkferlar sem geta tekið með fullnægjandi hætti á aðstæðum sem þessum komi þær aftur upp. Með þessum lokafjárlögum er með formlegum hætti verið að velta bankahruninu yfir á almenning í landinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×