Kreppan hefur veruleg áhrif í framhaldsskólum 14. október 2010 14:04 Framhaldsskólanemendur. Myndin er úr safni.
Út eru komnar niðurstöður rannsókna á líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara sem voru unnar af Guðrúnu Ragnarsdóttur lýðheilsufræðingi, framhaldsskólakennara og kennslustjóra í Borgarholtsskóla í samstarfi við Félag framhaldsskólakennara. Fyrri rannsóknin var lögð fyrir vorið 2008 á miklum þenslutímum í íslensku samfélagi. Tilgangur seinni rannsóknarinnar sem fór fram vorið 2010 var að kanna áhrif efnahagskreppu frá hausti 2008 á líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara og viðhorf þeirra til framhaldsskólalaga sem Alþingi samþykkti sumarið 2008. Í báðum rannsóknum voru lagðir spurningalistar fyrir framhaldsskólakennara, þátttakendur í fyrri rannsókninni voru 901 og 892 í þeirri síðari. Niðurstöður benda til að kreppan hafi veruleg áhrif í framhaldsskólum landsins. Samdráttur hefur orðið í launum kennara en á sama tíma hefur nemendum fjölgað og fjöldi kennara nánast staðið í stað. Námshópar hafa stækkað og kennarar hafa minni tíma til að sinna einstaklingsmiðaðri kennslu. Stór hluti kennara finnur fyrir streitu og álagi í starfi vegna aðgerða á vinnustöðum sínum sem tengjast kreppunni. Þjónusta skóla við nemendur hefur verið skorin niður sem birtist m.a. í minni stuðningi við nemendur, fábreyttara námsframboði og kennsluháttum, færri kennslustundum í áföngum og fjölmennari námshópum. Minni þjónusta bitnar einkum á nemendum sem standa höllum fæti í námi og hafa minna fjárhagslegt svigrúm. Allt eru þetta áhættuþættir í brotthvarfi frá námi. Flestir kennarar segjast jafnframt finna fyrir auknu sálfélagslegu álagi hjá nemendum. Niðurstöður rannsóknarinnar á viðhorfum kennara til nýrra framhaldsskólalaga eru m.a. þær að meirihluti þeirra er ánægður með það frelsi sem lögin veita skólum til að skipuleggja nám og námsbrautir. Þeir telja þó að bíða eigi með að innleiða þau vegna kreppunnar. Einnig finnst kennurum vanta skýrar áætlanir um framkvæmd laganna af hálfu mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira