Unglingar eru gersemar 14. október 2010 10:30 Órói er fyrsta kvikmynd Baldvins Z í fullri lengd. Hann hefur áður leikstýrt auglýsingum, stuttmyndum og myndböndum. fréttablaðið/valli
Órói er fyrsta kvikmynd Baldvins Z í fullri lengd. Reynsla hans af starfi með erfiðum unglingum á Akureyri kom að góðum notum við gerð myndarinnar. Kvikmyndin Órói í leikstjórn Baldvins Z verður frumsýnd á morgun á vegum Kvikmyndafélags Íslands. Hún er byggð á unglingabókum Ingibjargar Reynisdóttur, Strákarnir með strípurnar og Rótleysi, rokk og rómantík, sem hafa notið mikilla vinsælda. Ingibjörg er einmitt handritshöfundur Óróa ásamt Baldvini og fer einnig með hlutverk í myndinni. „Ég er mjög sáttur,“ segir Baldvin, sem hafði nýlokið við að grandskoða myndina í síðasta skiptið fyrir frumsýningu þegar blaðamaður ræddi við hann. Þetta er fyrsta mynd Baldvins í fullri lengd en hann hefur áður leikstýrt auglýsingum og stuttmyndum ásamt myndböndum við Eurovision-lög Eurobandsins og Jóhönnu Guðrúnar. „Þetta var ótrúlega erfitt en ótrúlega skemmtilegt,“ segir hann um tökurnar. „Ég er búinn að leggja allt mitt í þetta og nú á bara heimurinn eftir að dæma.“ Tökur á Óróa stóðu yfir í fimm vikur og fóru fram fyrir ári í Reykjavík og í bænum Taunton í Englandi. Eitt atriði var tekið upp á lestarstöð í Taunton þar sem Bítlarnir tóku upp atriði fyrir mynd sína A Hard Day’s Night. Mikið af góðri tónlist hljómar einmitt í Óróa og margir sem eiga lag í myndinni koma fram á Airwaves-hátíðinni í ár. Þar má nefna Agent Fresco, Bloodgroup, Nolo, Ólaf Arnalds, Sykur og Snorra Helgason. Órói er raunsæ þroskasaga sem fjallar um hinn sextán ára Gabríel, sem í byrjun myndarinnar er í sumarskóla í Bretlandi og kynnist þar Markúsi. Þar gerast ákveðnir hlutir sem leiða til þess að líf hans breytist. Þegar hann kemur til Íslands þarf hann að horfast í augu við þær breytingar. Baldvin segir myndina fjalla um unglingaraunveruleikann og vera alveg jafn skemmtilega fyrir fullorðna og unglinga. Fjallað er um svokölluð unglingavandamál, sem oft á tíðum eru í raun og veru foreldravandamál að hans mati. Hann segir að reynsla hans af starfi sínu með erfiðum unglingum á Akureyri fyrir nokkrum árum hafi nýst sér vel við gerð myndarinnar. „Mér finnst unglingar vera gersemi. Þetta er skemmtilegasti aldurinn í lífi manns. Maður sér ekki fram í tímann, sem gerir það að verkum að lífið er dásamlegt. En það er að sama skapi erfitt því manni finnst hver ákvörðun vera manns síðasta í lífinu.“ Með aðalhlutverk í myndinni fara Atli Óskar Fjalarson, Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm og Haraldur Ari Stefánsson. „Þessir krakkar sem leika í myndinni eru algjörar hetjur. Það á eftir að koma fólki mjög mikið á óvart hvernig þeir standa sig í þessari mynd,“ segir Baldvin. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Fleiri fréttir Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Jói Fel málar með puttunum Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ Sjá meira