Íslenskt skildingaumslag selt á fimm milljónir Erla Hlynsdóttir skrifar 14. október 2010 14:32 Skildingaumslagið. Á því eru tvö frímerki, tveggja skildinga og átta skildinga. Mynd: Thomas Høiland Auktioner
Ríflega aldar gamalt íslenskt skildingaumslag var selt á uppboði í Danmörku fyrir tæpar fimm milljónir íslenskra króna. Skildingaumslög eru afar fágæt enda skildingafrímerki aðeins í notkun í tæp fjögur ár, frá 1873 til og með 1876. Ekki er vitað hver keypti umslagið en ólíklegt er talið að þar hafi verið Íslendingur á ferð. Frímerkt umslagið var boðið upp hjá Thomas Høiland Auktioner í Danmörku og var lægsta boð rúmar 200 þúsund danskar krónur eða um fjórar milljónir íslenskra króna. Vísir sagði frá því að búist væri við að umslagið færi á mun hærra verði. Það var slegið hæstbjóðanda þann 7. október.Fjögur boð bárust Aðeins bárust fjögur boð í umslagið og var það að lokum selt fyrir tæpar fimm milljónir. Með uppboðskostnaði og öðrum aukagjöldum má þó gera ráð fyrir að kaupandi hafi þurft að reiða fram allt að sex milljónir. Hallur Þorsteinsson, formaður Félags frímerkjasafnara, veit ekki hver keypti skildingaumslagið en hann vissi þó af uppboðinu fyrirfram enda stór tíðindi í heimi frímerkjasafnara að skildingaumslag sé falt. Hann segir ólíklegt að Íslendingur hafi keypt umslagið en það sé ekki útilokað, jafnvel þó hann hafi ekki heyrt af því.„Deyjandi hobbí" „Menn eru nú hálf feimnir við að opinbera þetta því almenningur á oft erfitt með að skilja þetta. Ef fólk er þannig innstillt getur það litið á svona skildingaumslag einfaldlega sem bréfmiða sem aðrir eru að borga milljónir fyrir. Menn eru því ekkert rosalega viljugir til að viðurkenna slík kaup," segir Hallur. Fyrirfram var búist við að skildingaumslagið færi á mun hærra verði en Hallur bendir á að það hafi verið eilítið tætt og það rýri verðið. „Sem er auðvitað mjög ósanngjarnt því þetta er svo gamalt. Það er ekki hægt að ætlast til þess að það sé alveg heilt," segir hann. Í Félagi frímerkjasafnara eru um 200 félagar. Hallur segir að frímerkjasöfnun sé „deyjandi hobbí" og mestmegnis eldri menn sem nú safni frímerkjum. Tengd frétt: Fágæt íslensk frímerki - gætu farið á nokkrar milljónir
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira