Fólk kaupir miklu dýrari síma 14. október 2010 06:30 Nýir símar með fjölbreytta notkunarmöguleika seljast nú betur en í fyrra. Nordicphotos/AFP
Söluandvirði seldra símtækja hjá Vodafone á Íslandi er 33 prósentum hærra fyrstu níu mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone á Íslandi, segir töluverðar sveiflur milli mánaða. Mestur munur er á sölutölum í ágúst, þegar salan var 55 prósentum meiri en árið á undan og í mars þegar munaði 50 prósentum. Í september segir hann að söluandvirði símtækjanna hafi verið 22 prósentum hærra en í fyrra. „Og það er rétt að taka fram að virðisaukaskatturinn er ekki inni í þessu þannig að hækkun á honum skýrir ekki hluta af þessu,“ segir Hrannar. Hluti af skýringunni segir Hrannar að kunni að vera að símatækjasala hafi verið fremur léleg í fyrra og kunni því óvenjumargir símar að hafa verið „komnir á tíma“. Þá noti fólk líkast til tækifærið þegar að endurnýjun komi og kaupi síma með fjölbreyttari notkunarmöguleika en áður, svo sem síma sem auðvelda netnotkun, eða hafa þægilegt viðmót fyrir tölvupóst og samskiptaforrit á borð við Facebook. „Almennt er fólk að kaupa miklu flottari tæki en í fyrra því söluverðmæti seldra tæki hefur aukist miklu meira en magnið,“ segir hann og bendir á að þótt söluverðmætið í ágúst hafi verið 55 prósentum meira en í fyrra hafi ekki selst nema sautján prósentum fleiri símtæki. „Mestu munaði þar um nýja iPhone-símann, sem seldist fyrir tíu milljónir í mánuðinum.“ - óká
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira