Innlent

Þýfis enn leitað

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Lögreglan á Selfossi leitar enn fatnaðar sem stolið var úr verslun á Geysissvæðinu aðfaranótt laugardags 25. september. Þá nótt brutust þrír menn með hulin andlit inn í verslunina. Þeir létu greipar sópa og höfðu á brott með sér talsvert magn af verðmætum útivistarfatnaði. Þjófarnir létu ekki þar við sitja heldur komu aftur tæpri klukkustund síðar og tóku meira af fatnaði sem að megninu til er frá 66° norður. Söluvirði þess sem stolið var er á fimmtu milljón króna. Lögregla biður alla sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×