Innlent

Breikka Þjóðveg 1 næst borginni

suðurlandsvegur Samgönguráðherra stefnir að því að ákveða útboð um framkvæmdir á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi fyrir helgi.
suðurlandsvegur Samgönguráðherra stefnir að því að ákveða útboð um framkvæmdir á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi fyrir helgi.

Ríkisstjórnin ákvað í gær að fela samgönguráðherra og fjármálaráðherra að undirbúa útboð vegna breikkunar Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er stefnt að því að ákvörðun liggi fyrir síðar í vikunni.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi eiga að hefjast í maí. Þar er ætlunin að leggja nýjan tveggja akreina veg fyrir umferð á leið í austur á kaflanum milli Litlu Kaffistofunnar í austri og Lögbergsbrekku ofan við Lækjarbotna í vestri. Kaflinn er 6,5 kílómetra langur. Einnig á að bæta vegaxlir á núverandi vegi. Hann mun þjóna sem tveggja akreina vegur fyrir umferð í átt að borginni eftir að framkvæmdum lýkur haustið 2011.

Á Vesturlandsvegi verður breikkaður 1,5 kílómetra kafli frá Hafravatnsvegi að Þingvallavegi. Jafnframt á að stækka hringtorgið við Álafossveg og ljúka við undirgöng og göngustíga í grennd við Varmá.

Kostnaður við framkvæmdirnar á Vesturlandsvegi er áætlaður um 500 milljónir en um 1,4 milljarðar á Suðurlandsvegi. Í þeirri tölu er ekki gert ráð fyrir mislægum gatnamótum við Bláfjallaveg og Litlu kaffistofuna.- pg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×