Innlent

Mótmælir hreppaflutningi stuðningsfulltrúa

Ný stjórn FRS var kjörin í vor og hafa stjórnarmenn beitt sér fyrir því að lífeyrisréttindi félagsmanna séu sem tryggust
Ný stjórn FRS var kjörin í vor og hafa stjórnarmenn beitt sér fyrir því að lífeyrisréttindi félagsmanna séu sem tryggust Mynd: SFR

„Það eru ekki aðallega launin sem við erum með áhyggjur af heldur aðild starfsmanna að lífeyrissjóði og aðild að styrktarsjóði BSRB. Við viljum að það sé félagafrelsi og að fólk sé ekki flutt hreppaflutningum," segir Vésteinn Valgarðsson, stjórnarformaður Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa, FRS.

Stjórn félagsins fundaði í gær um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.

Félagsmenn FRS eru áhyggjufullir vegna stöðu mála, en ríkir mikil óvissa ríkir um starfsöryggi og áframhaldandi stéttarfélagsaðild þeirra sem starfa hjá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra. Þrátt fyrir að yfirfærsla málaflokksins eigi að fara fram nú um áramótin hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila.

Vésteinn segir að málið snerti rúmlega þúsund starfsmenn sem séu nú uggandi um sinn hag. Að mati Vésteins er þetta hreinlega spurning um mannréttindi og krefst stjórn FRS þess að mannréttindi verði virst í þessu sambandi.

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sett sig upp á móti því að starfsmenn haldi stéttarfélagsaðildinni og vinnur þannig þvert á vilja þeirra. Skýr vilji félagsmenn SFR liggur þegar fyrir en þeir vilja vera áfram félagar í SFR og krefjast þess að njóta sömu réttinda og starfsmenn héldu við yfirfærslu heilbrigðisstofnana frá sveitarfélögum til ríkis árið 1989-90, en þá fengu starfsmenn að velja hvort þeir héldu aðild sinni í þáverandi stéttarfélagi eða flyttu sig.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×