Innlent

Kveikt í rusli og mikið að gera í sjúkraflutningum

Mynd/ Visir.is
Eldur var kveiktur í rusli uppi á þaki í leikskóla í Grafarvogi um tíu leytið í gærkvöldi, en slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en hann ylli teljandi tjóni. Þakið er slétt og klætt tjörupappa, þannig að eldhaf hefði orðið, ef ekki hefði verið slökkt í tæka tíð. Talið er að börn eða unglingar hafi verið þarna að verki.

Gríðarlegur erill var hjá sjúkraflutningamönnum á höfuðborgarsvæðinu, sem sinntu 25 sjúkraflutningum á rúmum fjórum klukkustundum í gærkvöldi, þar af var helmingur neyðartilvik. Þessi fjöldi er álíka og á heilli vakt, að meðaltali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×