Innlent

Skráð viðtöl 2,1 á hvern íbúa

Viðtöl hjá læknum voru tæplega 669 þúsund í fyrra.
Viðtöl hjá læknum voru tæplega 669 þúsund í fyrra.
Skráð viðtöl, vitjanir, símtöl og önnur samskipti á heilsugæslustöðvum landsins voru ríflega 2,5 milljónir árið 2009. Að símtölum frádregnum voru þau 5,8 á hvern íbúa landsins.

Skráð viðtöl hjá læknum á heilsugæslustöðvum árið 2009 voru 668.744, eða 2,1 á hvern íbúa, sem er svipað og árið áður. Viðtölum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra fjölgaði hins vegar töluvert árið 2009 miðað við árið áður, eða úr 219.780 árið 2008 í 299.017 árið 2009. Samkvæmt upplýsingum frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins skýrir bólusetning gegn svínainflúensu að miklu leyti þessa aukningu.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×