Innlent

BHM: Miðstjórn leggst alfarið gegn frekari framlögum til Framtaks

Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM.
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM.

Miðstjórn Bandalags háskólamanna leggst alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna sinna til Framtakssjóðs Íslands. Í ályktun miðstjórnar segir að af gefnu tilefni geri hún þá kröfu til Framtakssjóðs Íslands, að hann sýni með óyggjandi hætti fram á að fjárfestingar hans fylgi tilgangi og skilmálum sjóðsins.

Bandalag háskólamanna hafi við stofnun sjóðsins varað við þeirri stöðu, sem því gæti fylgt að sjóður á vegum launamanna kæmi með virkum hætti að ákvörðunum um, hvaða fyrirtæki héldu velli í gegnum núverandi þrengingar.

Verði sjóðurinn ekki við óskum BHM um gagnsæi, muni bandalagið fara þess á leit að lífeyrissjóðir, sem það á aðkomu að, endurskoði aðkomu sína að sjóðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×