Innlent

Trylltist fyrir utan Mæðrastyrksnefnd og hótaði lífláti

Frá úthlutun Mæðrastyrksnefndar
Frá úthlutun Mæðrastyrksnefndar Mynd/GVA
„Hann hefur fengið sér of mikið neðan í því og liðið eitthvað illa," segir Ragnhildur G. Guðmundsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar. Um klukkan þrjú í dag trylltist maður fyrir utan húsnæði Mæðrastyrksnefndar og hótaði öryggisverði og lögreglu lífláti.

Ragnhildur segir að Securitas og lögreglan hafi tæklað málið vel og vandlega. „Það var ekkert panik eða eitthvað svoleiðis hjá gestum okkar, þetta var bara flott afgreiðsla hjá þeim."

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafði öryggisvörður beðið manninn um að færa bíl sem hann var á. Hann gerði það, en lagði í staðinn í bílastæði merkt fötluðum. Öryggisvörðurinn benti honum þá á að leggja annars staðar þar sem ekki mætti leggja í stæðið. Við það trylltist maðurinn og hafði í líflátshótunum við öryggisvörðinn.

Lögreglan var kölluð á staðinn og róaðist maðurinn ekki við það. Hann hafði einnig í líflátshótunum við lögreglu og var hann því handtekinn og færður í fangageymslu, þar sem hann verður látinn sofa úr sér vímuna, en hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna og áfengis.

Tekið var blóðsýni úr honum en hann var ekki viðræðuhæfur samkvæmt varðstjóra. Maðurinn sé góðkunningi lögreglunnar.

Búist er við því að maðurinn verði kærður hótanir gegn lögreglu og öryggisverði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×