Bíða eftir viðbrögðum 21. júní 2010 19:07
Uppgjör gengistryggðra lána veltur á viðbrögðum fjármálafyrirtækja, segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar alþingis - og vill svör frá þeim fyrir fimmtudag. Samtök fjármálafyrirtækja kalla hins vegar á að ríkisstjórnin beini samræmdum tilmælum til bílalánafyrirtækja og banka um hvernig eigi að bregðast við gengislánadómum Hæstaréttar. Þótt dómarnir hafi kveðið skýrt á um að gengistrygging krónulána væri ólögmæt er ýmsu ósvarað. Á öllum vígstöðvum virðist óvissa ríkja um hvernig eigi að gera upp og reikna vexti á lánin. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, stýrði í morgun fundi tveggja þingnefnda um gengisdómana, og mættu þangað fulltrúar Seðlabanka og Fjármálaeftirlits. Þeir vildu ekkert tjá sig um efni fundarins að honum loknum og þingmenn höfðu lítið að segja. „Þetta er flókið mál og erfitt að vinna úr því," segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. Helgi segir framhald málsins fyrst og fremst ráðast á viðbrögðum fjármálafyrirtækjanna. Á fimmtudaginn ætli Alþingi að ljúka þeim málum sem snúa að skuldastöðu heimilanna og því telur Helgi mikilvægt að fjármálafyrirtækin verði komin með skýr svör um viðbrögð fyrir þann tíma. Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, segir fyrirtækin ekki hafa tekið ákvörðun um næstu skref. „Okkur sýnist vera skynsamlegt fyrir stjórnvöld að stíga inn í það óvissuástand sem hefur skapast." Guðjón segir að mörgum spurningum verði ekki svarað nema fyrir dómstólum og kallar á samræmda lausn frá stjórnvöldum. Vissulega geti hvert og eitt fyrirtæki reiknað út hvernig ganga eigi frá þessum málum með sínum lögfræðingum og sérfæðingum. Hann segir þó skynsamlegra að stjórnvöld leggi línuna. Guðjón segist ekki vera að kalla eftir lagasetningu, fremur eftir tilmælum, eins og stjórnvöld sendu frá sér eftir bankahrunið.
Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Fleiri fréttir Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Sjá meira