Innlent

Ræddu um samvinnu í fiskveiðimálum og viðskiptum

Össur og Vladimir.
Össur og Vladimir.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með með Vladimir Titov, varautanríkisráðherra Rússlands. Á fundinum ræddu þeir málefni norðurslóða og samskipti landanna, m.a. samvinnu í fiskveiðimálum, viðskiptum, orkumálum og menningarmálum. Þá fundaði Titov ennfremur með ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins og öðrum embættismönnum.

Ísland og Rússland hafa átt gott samstarf á sviði sjávarútvegsmála, m.a. er varðar veiðieftirlit, hafrannsóknir og stjórnun sameiginlegra fiskistofna í Norður-Atlantshafi, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Í október sl. var íslenskum skipum veittum fiskveiðikvóti í rússnesku efnahagslögsögunni sem nemur 5.497 tonnum í ár. Þá hafa löndin átt góða samvinnu í nýtingu jarðvarma í Rússlandi, m.a. á Kamtsjatka-skaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×