Leðurblökukona gefur Bandaríkjamönnum íslenskar pylsur SB skrifar 10. júlí 2010 09:33 Gerri Griswold gengur undir nafninu Leðurblökukonan í Bandaríkjunum.
Bandarískur ferðalangur sem elskar Ísland mun halda fyrirlestur um Ísland þann 17. júlí næstkomandi í Connecticut. Konan, sem heitir Gerri Griswold, hefur ferðast reglulega til Íslands í áratug. Á kynningunni mun hún meðal annars gefa fólki sýnishorn af íslenskum pylsum og sýna myndir úr ferðum sínum. Gerri Griswold gengur undir nafninu Leðurblökukonan í Bandaríkjanum vegna áhuga hennar og ástríðu að uppfræða almenning um leðurblökur og hlutverk þeirra í vistkerfinu. Gerri er þó einnig mikill aðdáandi Íslands en hún heimsótti fyrst Ísland ásamt eiginmanni sínum, Eddie Greb-Lasky, fyrir um áratug síðan. Fyrirlestur Gerri verður haldin þann 17. júlí næskomandi og heitir: „A Fair with Iceland: Iceland Affair." Þar mun hún sýna ljósmyndir úr ferðum sínum, gefa fólki að smakka íslenskan mat og sýna dæmi um íslensk dýr sem finna má í Bandaríkjanum. Þá heitir einn fyrirlestur: „Víkingurinn innra með þér kallar." „Íbúar Íslands eru aðeins um 300 þúsund og þeir eru afkomendur víkinga," segir Gerri í frétt Foothills Media Group um málið. „Þeir námu þessa eyju fyrir 1000 árum og tungumál þeirra er eitt það elsta í heimi. Íbúarnir elska landið og dýrin sem þar búa og vita hve mikilvægt er að vernda umhverfið." Gerri bætti svo við: „Svíar líta til Íslands og sjá glötuð tækifæri." Í viðtalinu hrósar Gerri flugvellinum í Reykjavík og segir það ótrúlegt að hægt sé að fljúga inn í höfuðborgina, njóta góðs matar, skemmtunar og menningar, en yfirgefa svo borgina og vera tíu mínútum síðar í villtri náttúrunni. „Þar finn ég minn innri frið." Á þessum sérstaka Íslandsdegi sem leðurblökukonan Gerri stendur fyrir verður einnig boðið upp á íslenskar veitingar. Í fréttinni segir Gerri að hún muni deila með fólki mat sem hún tók með sér heim til Bandaríkjanna eftir síðustu heimsókn hennar til Íslands. Í boði verða íslenskar pylsur, súkkulaði, reyktur fiskur, ostur og fleira góðgæti. „Þú hefur ekki fengið þér alvöru pylsu (hot dog innsk blm.) fyrr en þú hefur smakkað eina með öllu frá Íslandi," segir Gerri.
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið „Þá bara krassa lungun“ Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Fleiri fréttir Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Sjá meira