Innlent

Jóhanna Sigurðardóttir: Ekkert tilefni til þess að ákæra Geir

Valur Grettisson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurðardóttir.

„Mér þykir það miður að Geir H. Haarde hafi verið ákærður og fari fyrir landsdóm. Mér þykir það mjög miður því mér þykir ekkert tilefni til þess," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í viðtali í útvarpsfréttum Ríkisútvarpsins.

Hún er ósátt við að fyrrum kollegi hennar, Geir, hafi verið ákærður fyrir afglöp í starfi.

Sjálf sagðist hún hafa kosið eftir sinni sannfæringu. Sú sannfæring hafi ávallt verið sú sama; hún greiddi atkvæði gegn öllum ákærum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×