Þétt setið í dómssalnum - málflutningi lokið Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 6. september 2010 12:04 Hæstiréttur Íslands. Mynd úr safni.
Málflutningur hófst í Hæstarétti í morgun í máli Lýsingar um vexti á gengistryggðu bílaláni. Þar með gæti óðum styst í að skorið verði úr óvissunni sem hvílt hefur á þúsundum landsmanna um vaxtakjör slíkra lána. Þetta tiltekna mál sem var flutt fyrir Hæstarétti í morgun snýst um gengistryggt lán sem hvíldi á Grand Cherokee jeppa sem maður tók á kaupleigu árið 2007 hjá Lýsingu. Maðurinn borgaði af bílnum fram á vor 2009 en skilaði bílnum þremur mánuðum síðar. Lýsing stefndi honum síðan vegna vanskila. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi að lánið skyldi bera óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands í stað hinna lágu erlendu samningsvaxta. Samkvæmt héraðsdómi skuldar maðurinn því Lýsingu tæpar 800 þúsund krónur - hefðu erlendu samningsvextirnir verið látnir gilda hefði skuldin hrapað í 120 þúsund krónur. Þéttsetið var í Hæstarétti í morgun þegar málflutningur hófst og þurfti að vísa fólki frá en talið er að dómur Hæstaréttar hafi fordæmisgildi við uppgjör annarra gengistryggðra lána. Um 40.000 einstaklingar eru með gengistryggð bílalán, og eru þá ótalin gengistryggð húsnæðislán. Það kemur því í ljós innan tíðar hvort Hæstiréttur taki undir með Héraðsdómar, fyrstu dómar Hæstaréttar eftir sumarfrí verða kveðnir upp eftir tíu daga. Óvíst er að myntkörfudómurinn náist á þeim tíma, en ólíklegt er að meira en fjórar vikur verði í að slegið verði á óvissuna um vaxtakjör gengistryggðra lána. Málflutningi er nú lokið.
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Fleiri fréttir Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Sjá meira