Ágreiningur leystur í Svíþjóð vegna ákvæða í samningi 25. ágúst 2010 12:00 Grundartangi. Ágreiningur HS Orku og Norðuráls hefur ekki áhrif á önnur viðskipti fyrirtækjanna, eins og sölu á raforku vegna álvers á Grundartanga.
Norðurál hefur stefnt HS Orku fyrir gerðardóm í Svíþjóð vegna ágreinings um magn og verð á raforku fyrir álver í Helguvík. Ástæða þess að ágreiningurinn verður leystur í Svíþjóð er ákvæði í samningi HS Orku og Norðuráls og hefur ekkert með eignarhaldið á HS Orku að gera. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að ágreiningurinn við HS Orku sneri bæði að magni og verði raforku vegna álversins í Helguvík. Hann sagðist hins vegar ekki geta farið nánari út í ákvæði samningsins þar sem hann væri bundinn trúnaði. Norðurál tilkynnti HS Orku það í júlí síðastliðnum að fyrirtækið hygðist skjóta ágreiningi um magn og verð raforku fyrir Helguvík til gerðardóms sænska viðskiptaráðuneytisins, en að sögn Ragnars Guðmundssonar er það vegna ákvæðis í samningi milli HS orku og Norðuráls og hefur ekkert að gera með eignarhaldið á HS Orku, en fyrirtækið er sem kunnugt er að stærstu leyti í eigu sænsks dótturfélags Magma Energy. Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, segir ágreiningur vegna Helguvíkur hafi ekki áhrif á önnur viðskipti fyrirtækjanna tveggja, sbr. verð á raforku til álversins á Grundartanga. Hann segir að menn séu hreinlega ekki sammála um hversu mikið magn raforku HS Orka beri að afhenda vegna Helguvíkur. „Menn eru ósammála um hversu mörg megavött okkur beri að afhenda samkvæmt samningnum með tilliti til allra fyrirvara. Varðandi verðið, þá var settur varnagli í samninginn um lágmarksarðsemi og síðan teljum við að það náist ekki með því verði sem er í samningnum," segir Júlíus. Hann segir að lagðir hafi verið ákveðnir útreikningar fyrir Norðurál sem fyrirtækið hafi ekki sætt sig við. Júlíus segir að krafan um arðsemi hafi ekki komið til vegna breyttrar stefnu nýrra eigenda, þ.e Magma Energy, á HS Orku heldur hafi þessi umræða um verðið átt sér stað síðan í október 2009, nokkru áður en Magma hafi komið að stjórn fyrirtækisins. Júlíus segist ekki geta svarað því hvenær niðurstaða sænska gerðardómsins muni liggja fyrir.
Tengdar fréttir HS Orka vill hærra verð Bæjaryfirvöld í Grindavík og Hafnarfirði hafa ekki lokið breytingum á aðal- og deiliskipulagi á Reykjanesi og í Krýsuvík. Það tefur fyrir fyrirhuguðum tilraunaborunum og raforkuframleiðslu HS Orku. Hægst hefur á framkvæmdum við byggingu álversins í Helguvík af þessum sökum. 23. ágúst 2010 06:45 Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Fleiri fréttir Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Sjá meira
HS Orka vill hærra verð Bæjaryfirvöld í Grindavík og Hafnarfirði hafa ekki lokið breytingum á aðal- og deiliskipulagi á Reykjanesi og í Krýsuvík. Það tefur fyrir fyrirhuguðum tilraunaborunum og raforkuframleiðslu HS Orku. Hægst hefur á framkvæmdum við byggingu álversins í Helguvík af þessum sökum. 23. ágúst 2010 06:45