Sagði ekki frá ferð sinni til Feneyja 19. janúar 2010 05:15 HAnna Birna Kristjánsdóttir Með Hönnu Birnu í ferð voru einnig Óskar Bergsson, Svandís Svavarsdóttir og Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri.
Borgarstjóri gat þess ekki að hún hefði farið í nokkurra daga ferð á Feneyjatvíæringinn um arkitektúr og skipulag í september 2008, þegar hún svaraði fyrirspurn Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa um ferðalög sín í borgarráði, 5. janúar síðastliðinn. Samkvæmt fundargerð borgarráðs, hinn 12. nóvember, spurði Ólafur F. um „kostnað vegna ótiltekins fjölda ferða Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í borgarstjóratíð hennar". Áfram hélt Ólafur: „Í öðru lagi er spurt í hversu margar ferðir Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur farið." Hanna Birna svaraði með því að hún hefði farið í sex ferðir á tímabilinu 26. nóvember 2008 til 28. nóvember 2009. Heildarkostnaður þeirra nam einni milljón og 797.376 krónum. Feneyjaferðin er ekki talin með. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu borgarstjóra nam kostnaður Hönnu Birnu við Feneyjaferðina 338.107 krónum. Ekki náðist í borgarstjóra en aðstoðarmaður hennar, Magnús Þór Gylfason, segir ástæðu þess að ferðin hafi ekki verið talin með vera þá að Hanna Birna hafi farið í hana sem fyrrverandi formaður skipulagsráðs. Skrifstofa borgarstjóra hafi því ekki undirbúið ferðina, heldur var hún „skipulögð af skipulagssviði Reykjavíkurborgar". Aðspurður segir hann Hönnu Birnu ekki hafa farið í fleiri ferðir á vegum borgarinnar, skipulagðar utan skrifstofu borgarstjóra. Magnús Þór tekur fram að áður hafi verið fjallað um ferðina og kostnað við hana í borgarráði og hún sé því öllum borgarfulltrúum kunn. Fyrirspurn Ólafs F. um hana verði að sjálfsögðu svarað og kostnaði vegna hennar bætt við svar borgarstjóra, þannig að um málið verði enginn misskilningur. Ólafur F. hyggst flytja vantrauststillögu á borgarstjóra á borgarstjórnarfundi í dag, um „öll þessi atriði og leynimakk borgarstjórans". klemens@frettabladid.is
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira