LÍÚ telur nýtt ákvæði í stjórnarskrá óþarft 31. ágúst 2010 06:30 Sáttanefnd um fiskveiðistjórnunarkerfið telur nauðsynlegt að skýrt ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum verði bætt í stjórnarskrá. LÍÚ telur það óþarft. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Starfshópur um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins, að fulltrúum Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) undanskildum, telur aðkallandi að skýrt ákvæði verði sett inn í stjórnarskrá um að auðlindir sjávar séu eign þjóðarinnar. Mælt er með því að sjávarútvegsráðherra komi erindi þessa efnis til nýskipaðrar nefndar sem nú undirbýr stjórnlagaþing. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kemur þetta fram í drögum að niðurstöðum starfshópsins en hún skilar ráðherra skýrslu í lok vikunnar. Eins og Fréttablaðið greindi frá á föstudag er litið til svokallaðrar samningaleiðar við úthlutun aflaheimilda í drögunum. Þýðing þessa er að gerðir verða samningar við útgerðir landsins um nýtingu þeirra aflaheimilda sem eru nú þegar í þeirra höndum. Með þessu telur starfshópurinn að formlega hafi verið tryggt að auðlindinni sé ráðstafað af ríkinu og eignarétturinn sé því skýr. Er því um innköllun og endurúthlutun að ræða, ekki fyrningu aflaheimilda. Rætt er um að slíkir samningar yrðu gerðir til fimmtán til tuttugu ára. Útgerðarmenn telja eðlilegt að þeir séu gerðir til mun lengri tíma, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Höfundar samningaleiðarinnar, lögmennirnir Lúðvík Bergvinsson og Karl Axelsson, mæla með því í skýrslu sinni að aflaheimildum verði skipt upp í potta. Annars vegar aflaheimildirnar, sem fara í stærri pottinn, og hins vegar pott fyrir byggðakvóta, strandveiðar og fleira af félagslegum toga. Með þessari leið er mælt í drögunum. Hvernig þessi skipting verður hlutfallslega á eftir að útfæra. Lúðvík og Karl varpa fram hugmynd um að útgerðin fái 80 til 95 prósent í skýrslu sinni. Í drögunum er gert ráð fyrir að gerð verði úttekt á tengslum fyrirtækja í sjávarútvegi með það fyrir augum að aflaheimildir safnist ekki á fárra manna hendur. Settar verði reglur um innbyrðis tengsl fyrirtækja. Framsal kvóta verður takmarkað og gerð krafa um að það verði gert á markaði. - shá
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Sjá meira