Siðbótar og rannsókna krafist vegna Árbótar 24. nóvember 2010 03:15
Alþingismenn kröfðust þess í gær að Árbótarmálið yrði rannsakað. Stjórnarþingmenn kölluðu eftir bættri siðvitund og því að menn létu af kjördæmapoti. Árbótarmálið var til umræðu á Alþingi í gær annan daginn í röð. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hóf umræðuna og sakaði Steingrím J. Sigfússon um „dæmalausa stjórnsýslu" og að hafa sagt þinginu ósatt á þriðjudag. „Ég spyr nú hér, ekki síst með vísan til látlausra ræðuhalda um stöðu þingsins og mikilvægi þess að eftirlitshlutverk þess við framkvæmdavaldið sé virt: Á að sætta sig við svona háttalag? Ég tel að það sé augljóst að Ríkisendurskoðun og umboðsmaður Alþingis, að eigin frumkvæði - enda eru þetta tæki sem þingið hefur - taki þetta mál til skoðunar. Og ég vil líka að viðkomandi þingnefndir, háttvirt félagsmálanefnd og háttvirt fjárlaganefnd, sem hefur í nægu að snúast, skoði þetta mál án tafar." Þórunn Sveinbjarnardóttir tók undir ákall um ný og betri vinnubrögð og stakk upp á því að menn hættu úthlutun á safnliðum og „kjördæmapoti" við fjárlagavinnuna, „hvernig þingmenn leggjast á sveif, ekki faglega, ekki einu sinni pólitískt, heldur með sértækum hagsmunum í eigin kjördæmi". Ólína Þorvarðardóttir sagði að margt hefði farið aflaga í stjórnsýslunni og að dæmi væru um „pólitísk afskipti, eftirlitsleysi, virðingarleysi við valdsmörk og faglegt hlutverk stofnana". Því þyrfti að gera gangskör að því að koma í gegn endurbótum á stjórnsýslu landsins með aukinni siðvitund ráðuneyta, stofnana og alþingismanna „sem hiklaust beita áhrifum sínum í gegnum framkvæmdarvaldið og stofnanirnar og hér á þessum vinnustað þvert á alla eðlilega stjórnsýslu og stjórnsýsluumgjörð." Þá kom Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðausturkjördæmi, í pontu og frábað sér að vera bendlaður „við eitthvað hankípankí með hæstvirtum fjármálaráðherra". Hann hefði engum þrýstingi beitt vegna málsins. Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokki, gerði það sama fyrir hönd samflokksmanna sinna í kjördæminu.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira