Innlent

Eldur í rútu

Það var mikill reykur sem gaus upp. Myndina tók ljósmyndarinn Björgvin Pálsson.
Það var mikill reykur sem gaus upp. Myndina tók ljósmyndarinn Björgvin Pálsson.

Eldur kviknaði í rútu fyrir stundu í Hafnarfirði. Eldurinn blossaði upp undir rútunni en enginn farþegi var í bifreiðinni þegar eldurinn kviknaði.

Samkvæmt varðstjóra fór einn slökkviliðsbíll á vegum slökkviliðsins í Hafnarfirði og réði niðurlögum eldsins.

Allnokkur reykur myndaðist en slökkvistarfið gekk vel. Rútan virðist nokkuð skemmd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×