Þúsundir án vinnu í rúmt ár 20. janúar 2010 06:00 óöruggt starf Atvinnuástandið er hvað verst í byggingariðnaði. Langtímaatvinnuleysi nær hins vegar helst til ungs fólks og þeirra sem komnir eru yfir miðjan aldur. Myndin tengist fréttinni ekki beint.fréttablaðið/gva
Vinnumálastofnun (VMST) gerir ráð fyrir því að langtímaatvinnuleysi muni ná til allt að tíu þúsund manns innan fárra mánaða. Hópurinn þrettánfaldaðist á síðustu tólf mánuðum. Unnið er að sérstöku átaki til að afstýra því að félagslegar og sálfræðilegar afleiðingar þessa vanda vaxi mönnum yfir höfuð. Karl Sigurðsson, sviðsstjóri vinnumálasviðs Vinnumálastofnunar, segir að ef svartsýnustu spár gangi eftir geri VMST ráð fyrir því að langtímaatvinnuleysi nái til um tíu þúsund manns þegar líður á árið. „Þetta er háð því að mál þróist með sama hætti og á undanförnum mánuðum – að stöðnunin á vinnumarkaðinum verði til lengri tíma. Auðvitað vonast maður til að eitthvað fækki í þessum hópi á móti.“ Á milli desembermánaða 2008 og 2009 þrettánfaldaðist hópurinn sem hafði verið atvinnulaus í meira en ár. Í lok desember 2009 voru þeir 3.224 en voru 255 í sama mánuði 2008. Á næstu tveimur mánuðum er fyrirsjáanlegt að talan hækki í yfir fimm þúsund manns. Hrafnhildur Tómasdóttir, deildarstjóri ráðgjafardeildar VMST, segir langtímaatvinnuleysi sérstakt áhyggjuefni og stofnunin sé um þessar mundir að grípa til sérstaks átaks undir hennar stjórn. Fjármagn hefur fengist til að ráða tíu nýja ráðgjafa, ekki síst til að taka á vanda ungs fólks. Þar er áherslan á að bjóða fjölda úrræða til að stoppa þann vítahring sem farinn er af stað. Hrafnhildur segir að reynsla annarra þjóða sýni að eyðileggingarmáttur langtímaatvinnuleysis sé mikill og afleiðingar þess sjáist víða í þeim samfélögum sem við vandann hefur glímt. Margir vitna til týndu kynslóðarinnar eftir finnsku kreppuna á tíunda áratug síðustu aldar. „Þar er átt við óvirkni ungs fólks sem leiddi til þess að stór hópur kom aldrei út á vinnumarkaðinn,“ segir Hrafnhildur. Hrafnhildur segir það þekkt hversu margir finna fyrir tilgangsleysi þegar fá tækifæri bjóðast og alvarlegast sé að þeir sömu aðlagast atvinnuleysinu og staðna þar. Því fylgir félagsleg einangrun. „Þetta á við alla, sama á hvaða aldri þeir eru. Fólk upplifir höfnun og finnst það einskis nýtt sem hefur áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu. Þekkt er að atvinnuleysi leiðir til örorku fjölda manna þegar aðstæður eru þessar á vinnumarkaði.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira