Innlent

Ungur piltur sleginn í rot eftir framhaldsskólaball

Átján ára piltur var sleginn í rot og í götuna fyrir utan Stapann í Njarðvík klukakn hálf tvö í nótt, en farmhaldsskóladansleikur var í húsinu.

Vitni kölluðu á lögreglu, sem lét flytja piltinn í sjúkrabíl á Heilsugæslustofnunina í Keflavík. Þar rankaði pilturinn við sér, en var látinn dvelja áfram á stofnuninni til eftirlits, þar sem hann mun hafa hlotið vægan heilahristing.

Lögregla veit hver árásarmaðurinn er og verður hann yfirheyrður í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×