Aðhald eflir hagvöxtinn meira en skattar 15. október 2010 03:30 AGS vekur mismikla hrifningu hjá fólki. Myndin er frá mótmælum í sumar gegn aðkomu sjóðsins hér. Fulltrúar sjóðsins segjast vera stjórnvöldum til ráðgjafar um leiðir í efnahagsmálum. Ákvarðanir séu hins vegar stjórnvalda. Fréttablaðið/Anton
Niðurstöður úr reiknilíkani AGS benda til þess að hagvöxtur verði meiri, verði hlutfall niðurskurðar hjá ríkinu aukið á kostnað skattahækkana. Aðhald launaútgjalda ýti undir hærra atvinnustig, en kalli á samstarf við verkalýðsfélög. Aðgerðir í fjármálum hins opinbera sem byggja í meiri mæli á niðurskurði en skattahækkunum leiða til merkjanlega aukins hagvaxtar, samkvæmt þjóðhagsreiknilíkani Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Í skýrslu sendinefndar AGS í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands segir að aðgerðir í fjármálum hins opinbera sem byggðu að 80 prósentum á niðurskurði og að fimmtungi á skattahækkunum myndu að líkindum skila 0,25 prósentustigum meiri hagvexti á árunum 2011 til 2015 en blönduð leið sem byggði til jafns á niðurskurði og gjaldahækkunum. Þá myndi slík leið skila 0,75 prósentustigum meiri hagvexti en leið þar sem áhersla væri meiri á aukna skattheimtu. Vísað er til þess að stjórnvöld geri ráð fyrir því að marka stefnuna í ríkisfjármálum núna í haust. Þá kemur fram í skýrslunni að til þess að ná markmiðum um aðhald í ríkisfjármálum til miðlungslangs tíma verði að koma til viðbótaraðhaldsaðgerðir sem nemi þremur prósentum af landsframleiðslu á árunum 2012 og 2013. „Á Íslandi er breið samstaða um að í aðgerðunum eigi að vera jafnvægi milli tekjuauka ríkisins og niðurskurðar útgjalda. Mun minni samstaða er um til hvaða aðgerða eigi að grípa,“ segir í skýrslunni. Þar kemur jafnframt fram að stjórnvöld og sendinefnd sjóðsins hafi verið sammála um að ólíkar nálganir í aðhaldi í ríkisfjármálum fælu í sér ólíka þjóðhagslega niðurstöðu, með hliðsjón af séríslenskum aðstæðum. Þannig gæti óhóflega mikil áhersla á fjármagns- og fyrirtækjaskatta sett fjárfestingu skorður, en snörp hækkun neysluskatta myndi valda tímabundinni verðbólgu, sem um leið myndi auka verðtryggðar skuldir. Þá myndi ofuráhersla á niðurskurð opinberrar fjárfestingar hafa neikvæð áhrif á fjárfestingu í einkageira og viðvarandi langtímavöxt. „Áhersla á aðhald launa og réttindagreiðslna gæti haft góð áhrif á vinnumarkaðinn, haldið aftur af launakostnaði og ýtt undir hærra atvinnustig,“ segir í skýrslu AGS. Sú leið er þó sögð kalla á áframhaldandi samstarf við verkalýðsfélög.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira