Engin niðurstaða en ný fundalota boðuð 15. október 2010 07:00 Tómas H. Heiðar
Fundi strandríkja um stjórnun makrílveiða lauk í London í gær án niðurstöðu. Önnur fundarlota er boðuð síðar í þessum mánuði. Bitbeinið er og verður hlutdeild strandríkjanna - Evrópusambandsins, Noregs, Færeyja og Íslands - í heildarveiði á makríl. Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands í makrílviðræðunum, segir það ekki þurfa að koma neinum á óvart að niðurstaða hafi ekki fengist. Enginn hafi gert ráð fyrir því að deilan yrði leyst á þessum fundi, enda hafi það tekið ESB og Noreg mörg ár að viðurkenna stöðu Íslands sem strandríkis þrátt fyrir að fyrir lægju vísindalegar upplýsingar um að makríl væri að finna í íslenskri lögsögu í sívaxandi mæli. Þegar það væri haft hugfast væru vonir um skjótfengna niðurstöðu um skiptingu makrílkvóta á milli strandríkjanna fjögurra óraunhæfar. Á fundinum var rætt um skiptingu makrílkvóta fyrir næstu ár. „Það er ekki ágreiningur um stjórnun makrílveiðanna í grundvallaratriðum. Allir eru sammála um að fylgja vísindalegri ráðgjöf ICES en menn greinir hins vegar á um hvernig á að skipta stofninum á milli strandríkjanna. Tekist er á um það," segir Tómas sem getur ekki upplýst hverjar kröfur Íslands eru eða hvað er í boði frá hendi ESB og Noregs. Hann segir að íslenska samninganefndin hafi lagt áherslu á að það sé sameiginleg ábyrgð allra strandríkjanna að sjá til þess að heildarveiðarnar úr stofninum verði sjálfbærar. Í því felist í raun að allir aðilar verði að draga úr sínum veiðum til að kröfum um sjálfbærar veiðar verði mætt. Úr þessu má lesa að allar þjóðirnar verði að draga úr sínum veiðum jafnt, þar sem öll löndin hafa úthlutað sér kvóta einhliða. Makrílkvóti Íslendinga fyrir árið 2010 er 130 þúsund tonn, sem eru um sautján prósent af samanlögðum kvótum allra ríkjanna. Því má gera ráð fyrir að íslenska samninganefndin fari fram á að Íslendingar fái sautján prósent af þeim heildarkvóta sem verður gefinn út samkvæmt veiðiráðgjöf ICES næstu árin. Tómas vill ekki tjá sig um þetta atriði, enda segir hann viðræðurnar á viðkvæmu stigi. ESB hefur sent Íslendingum tóninn á undanförnum vikum. Ekki fer leynt að það er að undirlagi Skota, sem eiga mikilla hagsmuna að gæta. Spurður um samningsvilja úr þeirri átt segir Tómas að í opnunarávarpi sínu á fundinum hafi hann tekið skýrt fram að hótanir frá ESB væru ekki til að greiða fyrir lausn málsins, heldur þvert á móti. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Reiðin magnast í Venesúela Erlent Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Innlent Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Innlent Með kylfur og mikið magn vímuefna Innlent Fleiri fréttir Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ Sjá meira