Innlent

Barist um fyrsta sætið í Reykjavík og á Akureyri

Úr safni. Flokksráðsfundur VG.
Úr safni. Flokksráðsfundur VG. Mynd/Stefán Karlsson
Á morgun fer fram forval Vinstri grænna í Reykjavík og á Akureyri fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Tvær konur gefa kost á sér gegn núverandi oddvitum flokksins í bæjarfélögunum.

VG fékk tvo fulltrúa kjörna í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir fjórum árum. Svandís Svavarsdóttir og Árni Þór Sigurðsson hættu sem borgarfulltrúar eftir að þau voru kjörin á þing og tóku Þorleifur Gunnlaugsson og Sóley Tómasdóttir sæti þeirra. Þau sækjast bæði eftir fyrsta sætinu en Þorleifur hefur verið oddviti frá því í maí á síðasta ári.

Á Akureyri á flokkurinn einnig tvo fulltrúa í bæjarstjórn, þau Baldvin H. Sigurðsson og Kristínu Sigfúsdóttur. Tvö gefa kost á sér í fyrsta sæti listans, Baldvin og Andrea Hjálmsdóttir. Kristín sækist ekki eftir endurkjöri.

18 gefa kost á sér í forvali flokksins í Reykjavík og 9 á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×