Innlent

Vilja frelsa eitt þrælabarn fyrir hverja götu á Akureyri

Ármann Hákon Gunnarsson tók þessa mynd á Indlandi. Hún er tekin í sumarbúðum fyrir börn sem nýlega hafa verið leyst úr vinnuþrælkun.
Ármann Hákon Gunnarsson tók þessa mynd á Indlandi. Hún er tekin í sumarbúðum fyrir börn sem nýlega hafa verið leyst úr vinnuþrælkun.

Þrælabörn á Indlandi verða í brennidepli á Landsmóti æskulýðsfélaga verður sett á Akureyri klukkan sex í dag af biskupi Íslands. Þar munu 650 unglingar og sjálfboðaliðar gefa vinnu sína til að styrkja hjálparstarfsverkefni á Indlandi. Í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni segir að verkefnið felist í því að frelsa þrælabörn á Indlandi úr ánauð og koma þeim í skóla. Fjáröflunin fer fram með söfnun meðal almennings og sölu á handverki unglingana og styrkja frá góðum fyrirtækjum og einstaklingum.

Jóna Lovísa Jónsdóttir framkvæmdastjóri Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar segir að þema mótsins í ár sé: „Þér eruð ljós heimsins." „Hugmyndin að þemanu kviknaði í kjölfar umræðu unglinga um ástandið á Íslandi og fátækt almennt. Það er augljóst að á Íslandi hefur fátækt aukist en við vildum víkka sjóndeildarhring ungmennanna og völdum því að helga Landsmótið frelsun þrælabarna á Indlandi," segir hún í tilkynningunni.

Hún bætir því við að verkefnið sé samstarfsverkefni við Hjálparstarf Kirkjunnar. „Unglingarnir munu safna fé á mótinu með sölu ýmissa muna sem þau hafa útbúið sjálf og þannig verður hægt að frelsa eitt þrælabarn fyrir hverjar 5000 kr sem safnast. Markmiðið er að frelsa eitt barn fyrir hverja götu á Akureyri."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×