Vingast við unglingsdrengi í nafni Sveppa Valur Grettisson skrifar 15. október 2010 10:42 Enginn veit hver stendur á bak við fölsku Sveppa-síðuna. En hitt er ljóst - það er ekki Sveppi sjálfur. „
Ég kannast ekki við þessa síðu," segir Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, en svo virðist sem óprúttin aðili fari nú um Facebook í nafni Sverris og biðji unga drengi um að verða vinir sínir. Það var áhyggjufull móðir sem benti Vísi á síðuna. Athygli vekur að síðan er í nafni Sverris, en eftirnafnið er skrifað vitlaust. Sá sem stjórnar síðunni á um 50 vini sem eru nær allt unglingspiltar. Móðirin sem hafði samband við Vísi sagði viðkomandi hafa óskað eftir því að verða vinur sonar hennar sem er 11 ára gamall. Móðirin grennslaðist fyrir um síðuna og þótti hún sérkennileg og lét vita af henni í kjölfarið. Sveppi er væntanlega auðveldur skotspónn þegar kemur að Facebook enda auðvelt að ná í myndir af honum auk þess sem hann er gríðarlega vinsæll á meðal yngri kynslóðarinnar. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir lögregluembættið af og til fá tilkynningar um vafasamar síður á Facebook. Hann segir ekkert þeirra mála sem hafa komið inn á þeirra borð hafi orðið að sakamáli. „Yfirleitt er fundið þá sem standa á bak við síðurnar sem eru tilkynntar. Svo er rætt við viðkomandi og málin leyst í kjölfarið," segir Friðrik sem hafði ekki heyrt af Facebook-síðunni í nafni Sveppa. Vísir ræddi við Sveppa sem sagðist áhyggjufullur yfir málinu en sjálfur er hann með síðu undir eigin nafni á Facebook. Hann segist hafa stofnað hana fyrir löngu síðan. Hann segir síðuna hvorki opinbera né óopinbera. Hér má skoða raunverulega síðuna hans Sveppa og svo er falska síðan hér.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira