Dæmdir fyrir kannabisræktun en fá að halda peningunum Valur Grettisson skrifar 15. október 2010 14:44 Mennirnir voru með gríðarlega kannabisræktun á Suðurlandi. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Tveir karlmenn á þrítugsaldrinum voru dæmdir í 20 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands dag fyrir stórfellda kannabisræktun. Aftur á móti féllst dómari ekki á að gera tæpar tólf milljónir króna, sem fundust við húsleit, upptæka, né rúmlega 7000 evrur sem fundust einnig í fórum mannanna. Þriðji maðurinn sem var ákærður var sýknaður öllum sökum. Mennirnir tveir játuðu undanbragðalaust að hafa gerst sekir um að rækta allt að 500 kannabisplöntur í útihúsi við Bala í Þykkvabæ, Rangárþingi ytra og hafa staðið að ólögmætri ræktun á kannabisplöntum allt fram til mars 2009 er lögregla fann ræktunaraðstöðuna við húsleit. Ekki var kært fyrir fíkniefnasölu í málinu og því lá ekkert fyrir um það hvort mennirnir hefðu fengið uppskeru af plöntunum. Það er þó ekki útilokað í dómnum. Þar af leiðandi taldi dómur að ekki hefðu verið færðar sönnur á að hagnaður hefði orðið af brotunum þrátt fyrir að þau væru almennt til þess fallinn að skila miklum ávinningi. Annar mannanna sagði í réttarsal að féð sem fannst hefði ekki verið afrakstur fíkniefnasölu, heldur hefði hann unnið mikið svarta vinnu. Hann sagðist hafa lagt vel fyrir og að auki stundað fjárhættuspil og að hann væri „almennt mjög fégráðugur maður." Báðir mennirnir eiga talsverðan afbrotaferil að baki.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira