Stefán Ólafsson: Velferðarkerfið mildaði höggið í kjölfar hrunsins 15. október 2010 12:02
Öflugt velferðarkerfi á Íslandi sá til þess að kreppan hitti Íslendinga ekki eins illa fyrir og margar aðrar þjóðir. Þetta kom fram í máli Stefáns Ólafssonar prófessors sem hélt erindi á aðalfundi BSRB sem nú stendur yfir. Þannig segir Stefán að velferðarkerfið muni nýtast til að milda höggið sem efnahagshrunið hafði í för með sér. Í erindinu lagði Stefán fram tölulegar staðreyndir um að lífskjör fólks séu best þar sem velferðarkerfið er sterkast, til að mynda á Norðurlöndunum. „Spurður hvort réttara væri að skera niður í velferðarkerfinu eða hækka skatta til að mæta fjárþörf ríkisins, sagði hann að án þess að hann ætlaði að gerast talsmaður skattahækkana þá hefði það sýnt sig að tillögur um niðurskurð hefðu komið meira við kaunin á fólki en skattahækkanir," segir í frétt um málið á heimasíðu BSRB. „Skattar á Íslandi væru enn lægri en það sem gerðist á öðrum Norðurlöndum, þrátt fyrir hækkanir síðustu ára. Því væru skattahækkanir til skemmri tíma skynsamlegri, það hefði enda verið gert í Svíþjóð upp úr 1990." Stefán segir að markmið Íslendinga eigi að vera að fá sem „öflugast velferðarkerfi fyrir sem minnstan pening." Hann ítrekaði einnig að hann væri að ræða um hækkanir sem skárri kost af tveimur slæmum og þá til skamms tíma. Að mati Stefáns hefur stefna stjórnvalda hlíft þeim sem lægstu launin hafa og lífeyrisþegum. „Spurður um almenna niðurfærslu skulda sagðist hann ekki sjá hvernig ætti að greiða fyrir hana; sjálfur væri hann talsmaður þess að þeim sem væru í sárustu neyðinni yrði hjálpað. Hann minnti á að tveir af hverjum þremur sem eru á vanskilaskrá hafi verið þar fyrir hrun. Hann sagði umræðuna í fjölmiðlum gefa mjög skakka mynd af ástandinu og staðreyndir væru markvisst falsaðar með átaki," segir í frétt BSRB. „BSRB hefur lagt áherslu á að velferðarkerfið sé hornsteinn samfélagsins og sé skorið þar of mikið niður muni það koma niður á lífskjörum þjóðarinnar. Stefán segir það ómótmælanlegt að þar sem norrænt velferðarkerfi er við lýði, þar hafi fólk það best; jafnt í kreppu sem eðlilegu árferði."
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira