Innlent

Mótmæli á Egilsstöðum

Egilsstaðir.
Egilsstaðir.

Boðað hefur verið til mótmælafundar á Egilsstöðum klukkan þrjú í dag vegna boðaðs niðurskurðar á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

Fundurinn verður haldinn í íþróttamiðstöðinni þar í bæ. Í tilkynningu frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi segir að ef af niðurskurðinum verði sé verið að færa heilbrigðisþjónustu í landshlutanum marga áratugi aftur í tímann og vega með alvarlegum hætti að búsetuskilyrðum á Austurlandi.

Sambandið hvetur Austfirðinga til að fjölmenna á fundinn, sína samstöðu og mótmæla áformum stjórnvalda.

Fundurinn verður sjötti borgarafundurinn á landsbyggðinni þar sem boðuðum niðurskurði er mótmælt, en þúsundir manna hafa tekið þátt í slíkum mótmælum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×