Innlent

Smyglarinn laus úr haldi lögreglu

Frá athafnasvæði Eimskips.
Frá athafnasvæði Eimskips.
Maðurinn sem lögregla veitti eftirför á sjöunda tímanum í morgun er laus úr haldi lögreglu. Hann verður boðaður í skýrslutöku síðar og er málið í rannsókn bæði hjá lögreglu og Tollgæslunni. Samkvæmt upplýsingum frá Tollgæslunni er maðurinn íslenskur og á „miðjum aldri".

Manninum var veitt eftirför í morgun sem endaði með árekstri á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar. Þar keyrði maðurinn framan á strætisvagn. Í tilkynningu frá Tollgæslunni segir að „talsvert magn af smyglvarningi" hafi fundist í bifreiðinni. Guðni Markússon Sigmundsson aðstoðaryfirtollvörður segir í samtali við Vísi að smyglvarningurinn hafi verið áfengi og tóbak. Hann segir að á þessu stigi málsins sé ekki hægt að upplýsa um magnið.

Íslendingurinn, sem er skipverji hjá Eimskip, kom til landsins með vöruflutningaskipi í gærkvöldi. Í morgun keyrði hann svo út af athafnasvæði skipafélagsins og reyndu starfsmenn Tollgæslunnar til að fá að stöðva bifreiðina. Hann sinnti þeim tilmælum ekki og hófst þá eftirför sem endaði á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar. Málið er nú í höndum lögreglunnar.

Tveir slösuðust í árekstrinum, hvorugur alvarlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×