Innlent

Um tuttugu forstjórar með andmælafrest frá kjararáði

Hæst launuð Enginn ríkisstarfsmaður á að fá hærri laun fyrir dagvinnu en 935.000 eins og forsætisráðherra fær í mánaðarlaun. Fréttablaðið/Valgarður Gíslason
Hæst launuð Enginn ríkisstarfsmaður á að fá hærri laun fyrir dagvinnu en 935.000 eins og forsætisráðherra fær í mánaðarlaun. Fréttablaðið/Valgarður Gíslason

Kjararáð hefur sent rúmlega tuttugu forstjórum og forstöðumönnum ríkisstofnana og hlutafélaga bréf þar sem þeim er gefinn frestur til 1. febrúar til að andmæla nýrri ákvörðun ráðsins um launakjör þeirra.

Alþingi samþykkti í ágúst lagabreytingar til þess að færa ákvörðun um launakjör margra embættismanna og ríkisforstjóra undir ákvörðunarvald kjararáðs. Ráðinu var falið að framfylgja þeirri stefnu að föst laun ríkisstarfsmanna yrðu ekki hærri en þær 935.000 krónur sem Jóhanna Sigurðardóttir fær greidd í mánaðarlaun. Kjararáð hefur síðan unnið að málinu.

Guðrún Zoëga, formaður kjararáðs, sagði við Fréttablaðið að nýir úrskurðir um laun ríkisforstjóra yrðu kynntir fljótlega eftir að andmælafrestur forstjóranna rynni út.

Meðal þeirra embættismanna sem ný ákvörðun kjararáðs snertir eru seðlabankastjóri og forstjórar Samkeppniseftirlitsins, Fjármálaeftirlitsins og Íbúðalánasjóðs. Einnig forstjórar hlutafélaga sem ríkið á að mestu eða öllu leyti, svo sem útvarpsstjóri RÚV, forstjórar Landsvirkjunar, Íslandspósts, Neyðarlínunnar, RARIK og Orkubús Vestfjarða, Flugstoða og Keflavíkurflugvallar. - pg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×